Þitt tækifæri! Við tökum vel á móti þér!
Við leitum að þroskaþjálfa í árs-afleysingu á heimilissviði
Starfssvið:
- Hefur umsjón með gerð þjónustusamninga við einstaklinga í samráði við forstöðumann heimilis- og atvinnusviðs
- Skipuleggur þjónustuáætlanir í samráði við forstöðumann og ber ábyrgð á endurskoðun og eftirfylgni
- Leiðbeinir og styður þjónustunotendur við heimilishald og daglegar athafnir eftir því sem við á og þörf krefur
- Tekur þátt í teymisvinnu með öðrum starfsmönnum
- Tekur þátt í þróunarstarfi undir stjórn forstöðumanns
- Sér um faglega fræðslu til starfsfólks og þjónustunotenda
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Íslenskt starfsleyfi sem þroskaþjálfi
- Þekking og reynsla á að vinna með fólki með fötlun æskileg
- Samskipta- og samstarfshæfni mikilvæg
- Frumkvæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Jákvæðni og áhugi á að leiða fjölbreytt starf í anda gilda Sólheima
Húsnæði á Sólheimum er fyrir hendi
Á Sólheimum búa að jafnaði 43 einstaklingar sem fá stuðning á sínum heimilum frá þjónustumiðstöð Sólheima.
Þroskaþjálfi heyrir undir forstöðumann á heimilissviði og á samstarf við hann ásamt forstöðumönnum á öðrum sviðum.
Umsóknir og fyrirspurnir veitir Aðalbjörg Jensdóttir í síma 855 6016 eða adalbjorg@solheimar.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
————————————————————————————-
Heimsins bestu kveðjur