Félagsmálaráðuneytið semur við Sólheima um kolefnisjöfnun
Félagsmálaráðuneytið og Sólheimar undirrituðu í dag samning um kolefnisjöfnun. Samningurinn er til fimm ára. Markmið hans er að binda kolefni sem til fellur vegna starfsemi félagsmálaráðuneytisins. Kolefnisbindingin fer fram með þeim hætti að gróðursett verða tré í Sólheimaskógi á Sólheimum, en skógræktin hér á Sólheimum er með lífræna vottun frá Vottunarstofunni Tún.
Félagsmálaráðneytið varð þar með fyrst ráðuneyta til að gera langtímasamning um kolefnisjöfnun. Með tilkomu samningsins, sem og annarra sem Sólheimar hafa samið við á undanförnum misserum, skapast 4-6 störf hjá við gróðursetningu hjá fötluðum íbúum Sólheima.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins:

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2020/01/09/Felags-og-barnamalaradherra-semur-vid-Solheima-um-kolefnisjofnun/