Til hamingju með daginn frú Vigdís Finnbogadóttir
Brautryðjandinn og velgjörðakona Sólheima frú Vigdís Finnbogadóttir fagnar 90 ára afmæli sínu í dag 15. apríl. Vigdís hefur alla tíð lagt Sólheimum mikið lið. Hún færði Sólheimum eftirstöðvar kosningasjóðs síns á sínum tíma til eflingar starfseminnar og hefur heimsótt Sólheima reglulega í gegnum tíðina. Frú Vigdís skipar sérstakan sess í hjörtum okkar á Sólheimum og við erum henni afar þakklát fyrir allt hennar starf í þágu lands og þjóð. Til hamingju með daginn frú Vigdís Finnbogardóttir.