Magnús Kjartan heldur tónleika í Sólheimakirkju á Menningarveislu Sólheima
Magnús Kjartan, söngvari Stuðlabandsins, flytur íslenskar dægurperlur í Sólheimakirkju á Menningarveislu Sólheima laugardaginn 25. júní klukkan 14:00.
Frítt inn og öll velkomin.
Menningarveisla Sólheima 2022 stendur frá 4. júní til 20. ágúst.
///
Að venju verður margt um að vera á Menningarveislunni: sýningar, tónlekar, markaðstorg, leiðsagnir og óvæntar uppákomur.