Hljómsveitin Eva heldur tónleika á Sólheimum
Hljómsveitin Eva hefur vakið athygli fyrir einlæga framkomu og grípandi lagasmíð. Margir kannast við Ævilagið úr sjónvarpsþáttunum Ævi og fyrir sumum koma jólin ekki fyrr lagið Myrkur og mandarínur heyrast. Eitt er víst að það mun vera einlæg og skemmtileg stund í Sólheimakirkju með Hljómsveitinni Evu.