Sesseljuhús umhverfissetur
Sesseljuhús umhverfissetur er fræðslusetur um umhverfismál og sýningarhús um sjálfbærar byggingar. Sesseljuhús er staðsett í hjarta Suðurlands, að Sólheimum í Grímsnesi og þar fer fram alhliða fræðsla um umhverfismál.
Í Sesseljuhúsi er meðal annars boðið upp á háskólanám fyrir bandaríska nemendur og valnámskeið fyrir nemendur Grunnskólans Ljósaborgar, sem er grannskóli Sólheima. Haldin eru málþing, fundir og námskeið þar sem allir eru velkomnir.
Á hverju sumri er opnuð sýning um umhverfismál í tengslum við Menningarveislu Sólheima og að auki er gefið út fræðsluefni sem bæði er hægt að nálgast hér á síðunni og í Sesseljuhúsi. Unnið er í samstarfi við innlenda og erlenda aðila að fræðslu um umhverfismál og er fræðslustarfið samofið öðru starfi að umhverfismálum á Sólheimum.
Sesseljuhús er timburhús með grasþaki og voru sjónarmið umhverfisverndar í hávegum höfð við hönnun og smíði þess. Húsið opnaði 5. júlí 2002 en þá voru 100 ár liðin frá fæðingu Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur, stofnanda Sólheima, sem var langt á undan sinni samtíð í umhverfismálum. Fyrstu skóflustunguna tók Sif Friðleifsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, en ríkisstjórnin lagði fram 75 milljónir króna til byggingar hússins.
Húsið er leigt út til almenns funda- og námskeiðahalds, en afar góð aðstaða fyrir allt að 100 manns er í húsinu, sjá Ráðstefnu- og fundaaðstaða. Það er öllum opið og gestum velkomið að ganga um og skoða allar þær nýjungar sem húsið hefur upp á að bjóða.
KORT AF SVÆÐINU
Hér má skoða yfirlitskort af öllum helstu svæðunum á Sólheimum.
PÓSTLISTI
Skráðu þig á póstlistann okkar.VEÐUR
Hitastig: 7°C
Vindátt: NV
Vindhraði: 10,3 m/s
Örlítið skýjað
Prenta þessa síðu.