Opnunartímar  |   Símaskrá  |   English  |   RSS Fréttir  

Starfsnám

Námsframboð og fræðslustarf hefur aukist jöfnum höndum á Sólheimum undanfarin misseri og árið 2010 verður enn bætt í því þá verður boðið upp á Starfsnám á Sólheimum. Starfsnámið býður nemendum upp á að öðlast starfsreynslu og geta unnið að eigin áherslum á sínu sviði um leið og þeir öðlast innsýn í hvernig unnið er að umhverfislegri og samfélagslegri sjálfbærni undir handleiðslu starfsfólks á Sólheimum. 

Tilgangur starfsnáms á Sólheimum



Starfsnám á Sólheimum miðar að því að bjóða einstakt tækifæri fyrir nemendur til að taka þátt í menntaverkefni sem sem miðar að aukinni sjálfbærni og sterkara samfélagi í sjálfbæru samfélagi á Suðurlandi. Sólheimar eru heimsþekkt samfélag fyrir fólk með sérþarfir, og mun starfsnámið veita nemendum innsýn í og reynslu af þátttöku í sjálfbæru samfélagi og gefa þeim tækifæri á að einbeita sér að einstaklingsmiðuðum verkefnum og markmiðum í námi sínu.

Samfélagið á Sólheimum


Saga Sólheima:
Sólheimar voru stofnaðir 5. júlí 1930 af Sesselju Hreindísi Sigmundsdóttur (1902-1974), og byggir starfið í hinu sjálfbæra samfélagi Sólheima enn á lífsstarfi hennar og hugsjónum. Sesselja varð fyrir miklum áhrifum af kenningum Rudolf Steiner, og lagði hún áherslu á ræktun einstaklingsins og umhverfisins. Sesselja var ötull talsmaður þess að fötluð og ófötluð börn ættu samskipti og ólíkt því sem annars staðar gerðist á þeim tíma var þessari hugmyndafræði fylgt á Sólheimum. Hún stofnaði barnaheimili á Sólheimum og lagði áherslu á lífræna ræktun matvæla, en hún var frumkvöðull á því sviði á öllum Norðurlöndunum, heilbrigt mataræði og listræna tjáningu. Margar hugmynda hennar ráku í berhögg við skoðanir yfirvalda því á þessum tíma var talið óheilbrigt fyrir ófötluð og fötluð börn að leika sér saman. Hið mikla magn grænmetis í mataræði því sem Sesselja lagði áherslu á var einnig talið óheilbrigt fyrir börnin. Slíkir hugmyndaárekstrar heyra nú að mestu sögunni til og á Sólheimum er enn lögð áhersla á að skapa heilbrigðar aðstæður fyrir líf og störf bæði fyrir fatlaða og ófatlaða.

Sólheimar eru ekki lengur barnaheimili heldur samfélag þar sem markmiðið er að veita hverjum einstaklingi tækifæri í sjálfbæru samfélagi. Sólheimar eru heimili og vinnustaður 43 fatlaðra einstaklinga en alls búa yfir 100 manns á Sólheimum. Af starfsfólki Sólheima búa 10-15 manns utan byggðahverfisins, en á Sólheimum býr líka fólk sem ekki starfar þar. Sjálfboðaliðar hafa frá upphafi verið mikilvægur hlekkur í starfinu og dvelja þeir ýmist til lengri eða skemmri tíma. Menntaverkefni, sérstaklega erlendra háskólanema og starfsnám draga fólk einnig til Sólheima, en á ársgrundvelli er talið að milli 25 þúsund og 35 þúsund manns heimsæki Sólheima ár hvert og er staðurinn í raun vinsæll viðkomustaður ferðamanna árið um kring.

Á Sólheimum er leitast við að hver einstaklingur fái sem best notið sín. Samfélagið nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir listrænt og umhverfisvænt andrúmsloft og er stolt af blómlegu félagslífi, íþróttastarfi, menningarlífi og menningarviðburðum.

Starfsnámið - Yfirlit




Starfsnám á Sólheimum er opið fólki sem er í námi og öðrum (18 ára og eldri) en þeir sem sýna frumkvæði og einlægan áhuga, og hafa menntun á sviði samfélagsmála, listgreina, umhverfisfræða og/eða áhuga á öðrum rannsóknum sem uppfylla þarfir Sólheima.

Markmið starfsnámsins eru:
  • Að kynna nemendum daglegt líf og störf í sjálfbæru samfélagi sem er eitt hið elsta á heimsvísu og einstakt að uppbyggingu og starfsemi.
  • Að nemendur öðlist skilning á því hvernig unnið er að sjálfbærni með samfélagi.
  • Að nemendur þrói einstaklingsmiðuð lærdómsmarkmið fyrir starfsnámið.
  • Aðstoða nemendur við að velja sér starfsvettvang með því að veita starfsreynslu á þeirra kjörsviði.
  • Að aðstoða nemendur við að skapa tæki til að þróa starfsferil sinn.
  • Mynda tengsl við aðra á þeirra kjörsviði sem geta aðstoðað nemendur við að fá starf við hæfi.
  • Að hjálpa nemendum við að öðlast skilning á samfélagi, sjálfbærni og umhverfismálum.
  • Að auka þekkingu nemenda á íslenskri menningu, tungumálinu og sögu landsins.
  • Að styrkja nemendur sem einstaklinga, sjálfstæði þeirra og persónlulegan vöxt og þroska.

Unnið er að þessum markmiðum með handleiðslu nemendanna og uppbyggingu starfsnámsins. Aðalleiðbeinandi starfsnámsins er forstöðumaður Sesseljuhúss umhverfisseturs, sem er sýningarhús um sjálfbærar byggingar og fræðslusetur um umhverfismál.

Frekari upplýsingar varðandi starfsnámið eru veittar í síma 480 4483, en einnig er hægt að senda fyrirspurnir á sesseljuhus@solheimar.is

 

FACEBOOK

PÓSTLISTI

Skráðu þig á póstlistann okkar.

VEÐUR

Hitastig: 7°C

Vindátt:

Vindhraði: 7,2 m/s

Örlítið skýjað

 
 
Sólheimar sjálfbært samfélag | 801 selfoss | Iceland | Sími: 480 4400 | solheimar@solheimar.is