Garðyrkjustöðin Sunna
Sólheimar eru vagga lífrænnar ræktunar á Íslandi en Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir var merkur frumkvöðull á því sviði. Almennt er talið að upphaf lífrænnar ræktunar , ekki aðeins á Íslandi, heldur einnig á norðurlöndunum, hafi verið á Sólheimum. Sesselja var mikill náttúruunnandi og var meðal þeirra á Íslandi sem fyrst létu sig umhverfismál varða. Það er því löng og sterk hefð fyrir umhverfisvitund á Sólheimum og mikil áhersla á að öll matvæli sem framleidd eru á Sólheimum fullnægi kröfum um lífræna ræktun.
Lífræn ræktun byggir á því að varðve
ita frjósemi jarðvegarins og ekki er notast við kemísk efni til að auka vaxtarhraða grænmetisins. Lífrænar varnir eru notaðar til að takast á við óværur sem koma upp. Stunduð er skiptirækt til að viðhalda frjósemi jarðvegarins og minnka hættuna á sjúkdómum. Við ræktunina er notast við moltu, fiskimjöl og þörungamjöl.
Helstu framleiðsluvörur Sunnu eru:
- Tómatar.
- Kirsuberjatómar.
- Agúrkur.
- Paprikur.
- Salat.
- Blandað salta í bökkum.
- Kokteltómatar.
- Míní gúrkur.
- Blandað salat í bökkum.
Sunna hefur alla tíð ræktað lífrænt grænmeti. Afurðir Sunnu er seldar til mötuneytis Sólheima, í versluninni Völu á Sólheimum, einnig í verslunum Hagkaups og í verslunum Nettó. Útlitsgallað grænmeti er nýtt til niðursuðu í Næranda og þannig nýtist framleiðslan að fullu.
Framleiðsla Sunnu er lífrænt vottuð af vottunarstofunni Túni.
Garðyrkjustöðin Sunna er einn stærsti framleiðandi á lífrænt ræktuðu grænmeti undir gleri á Íslandi.
KORT AF SVÆÐINU
Hér má skoða yfirlitskort af öllum helstu svæðunum á Sólheimum.
PÓSTLISTI
Skráðu þig á póstlistann okkar.VEÐUR
Hitastig: 8°C
Vindátt: S
Vindhraði: 7,2 m/s
Örlítið skýjað
Prenta þessa síðu.